Friday, January 18, 2013

Áríðandi frjettatilkynning

Símskeyti frá Madríd.
Datt í það -stop- Man ekkert - stop - sit í fangelsi - stop - vantar lögfræðing - stop
Stop mister -stop - æ mín it mister - stop - ísland vann - stop - verð að hætta - stop -


Wednesday, January 16, 2013

Handritin heim!

















Eftir að hafa selt okkur maðkað mjel í árhundruð.
Stolið handritunum okkar sem við vorum sjálf hálfnuð við að borða í miðjum móðuharðindum.
Eftir 14-2 niðurlægingu á Parken.
Engin stig í Evróvision.
Eftir að hafa fótbrotið og drepið Jónas Hallgrímsson fleygt honum í fjöldagröf og sent okkur til baka beinagrind af bakara til jarðsetningar í þjóðargrafreitnum.
Gefið Jóni Sigurðssyni sýfilis.
Myrt Guðmund Kamban
Þrælað mörgum svaungum bóndasyninum í sívalaturni og brimarhólmi.
Tekið af okkur hvítbláann.
Hálshoggið og hengt okkur.
Eyðilagt grunnskólalíf þúsunda ungmenna með dönskukennslu.
Dregið hvern dönskukennarann að flöskunni.
Litið niður á okkur og gert að okkur gys um aldir alda.

Þrátt fyrir alla þessa niðurlægingu og háðung náðu sprundin hans Ólafs Ragnars Grímssonar samt ekki að sýna þá skapgerð að standa upp í hárinu á þessari ofmetnu þjóð.

Er þetta þjóðarviljinn og þjóðarsálin sem Ólafur mærir svo yfir kristalsglösum?

Þarna mætti herraþjóðin þrælum sínum og minnti enn á stöðu sína og ægivald.

Þó sjálf lungaþemban og krumpudýrið Margrét danadrotting hefði staðið í vörn danska liðsins hefðu okkar menn 
ekki getað svo mikið sem hreyft við henni.

Til er íslenskt máltak: 
Ef sverð þitt er stutt þá gakktu fetið framar.

Jeg hyggst ná fram hefndum í kveld og drekka danskan sessunaut minn undir borðið.
Það mun vera mitt fet framar.

Það er Jón Andri Finnson sem símar frá Madríd.

Tuesday, January 15, 2013

Svavar lagði grunninn að góðum sigri

Þursabandalag Íslands heldur sigurgaungu sinni áfram hjer í Madrid.
Nú unnu skylmingarþrælar Guðmundar litlu feitu og búralegu spellvirkjana frá Makedóníu.
Makedónía er víst hálfgert útibú frá glæpagreninu Albaníu en eini glæpurinn sem framinn var í kveld var hve glæpsamlega  leiðinlegur þessi leikur var.

Hann var svo leiðinlegur að jeg nennti ekki einu sinni á völlinn í kvöld og eyddi kveldinu þess í stað á krá hér á nágrenni við hótelið.
Besti leikmaður Makedóna í kvöld var varnartröllið Brilliantín Lasarov

Í alþjóðlegum frejttamiðlum eins og Heima er Bezt, Hannyrðablaðinu og Dimmalætting er Svavar talin hafa staðið sig best af strákunum hans Guðmundar þjálfara.
Drengurinn sá getur nú aldeilis hrint frá sér og glímutökin slík að Grettisbeltið eitt yrði nægjanlegt til sæmdar Svavari.
















Guðmundur þjálfari hefur passað upp á að hleypa ekki tannþræðinum aftur í markið heldur stólar hann á stúlkuna með hárbandið.

Næst mætum við sniglaétandi síkveinandi frökkum sem virðast koma enn eitt árið með lið sem gæti verið tekið beint úr Benetton auglýsingu.
Það mætti álykta að Álfheiður Ingadóttir hafi valið lið frakka allt í nafni fjölmenningar.
Jeg náði mynd af franska landsliðinu í morgunmatnum á hótelinu í morgun þar sem þeir voru að fá sjer banana og greipaldin.
























Það er Jón Andri Finnson sem símar frá pútnahúsi í Madríd - fullur og í fínu standi.

Sunday, January 13, 2013

Chile con carne

Guðmundur þjálfari tók þá rjettu ákvörðun að setja tannþráðinn á bekkinn og Gústav með gelið í markið.
Og það var ekki að sökum að spyrja, þursaflokkurinn okkar náði fram sigri gegn rauðnefjum.
Indjánarnir náðu snemma forskotinu í leiknum og náðu að hanga í rasshárum okkar manna allan fyrri leikþátt.
Fór jeg þá baksviðs og gerði landnám í búningsherbergi þeirra færandi þeim eldvatn til drykkju.
Áður en þeir gátu sagt Magellan voru þeir farnir að þamba eldvatnið líkt og um verslunarmannahelgi í Saltvík.
Seinni leikþáttur var eins og að horfa á endurgerð á falli Mayanna.
Okkar menn náðu að berja, hrinda og kýla eins og þá listi.
Fremstir í flokki fóru þeir Svavar og Hallgrímur sem virtust ætla að fremja þjóðarmorð í vörninni.

Þar sem dagatal indjánanna rann út 21.desember 2012 vissu þeir eigi hvort var nátt eða dagur í sóknarleiknum.
Okkar menn náðu mjög góðum bakhrindingum og hálstökum sem sjást eingaungu nú orðið á síldarhátið á Siglufirði.

Og út á það gengur þessi glæsta íþrótt.

Jeg sjálfur var orðinn talsvert hífaður þegar leið á leikinn enda sá jeg orðið þrefalt þegar leikmaðurinn Feuchtmann fjekk knöttinn.



Þjálfari Chile, Nóa Góa.
Að leik loknum fór jeg á barinn með þjálfara Chilemanna sem sagðist vera ættaður frá páskaeyju.
Þögul týpa af manni og splæsti hvurn umgangin á fætur öðrum.

Næst mætum við Makedónum sem eru svo hugmyndasnauðir að þeir gátu ekki einu sinni fundið frumlegt nafn á landið sitt.
Fengu bara lánað nafn nágranna sinna.









Það er Jón Andri Finnson sem símar.

Saturday, January 12, 2013

Sovjet - Ísland



















Jeg hjelt borubrattur til vallar í dag.
Ætlun mín var að dreypa á gammeldansk og vodka meðan íslenska liðið myndi
taka Sovjetmenn í Katyn skóg handboltans, en endastöðin var víst Stalingrad.

Rjett er nú að rifja upp orð herbergisfjelaga mins Holgers Nielsen í íþróttaakademíu Cristians X danakonungs.

Þegar maður ætlar sjer að vinna handboltaleik þarf maður eftirfarandi
1 stk feitabollu í markið
1 stk feitabollu á línuna
2 stk dverga í hornin
1 stk slána í skyttu.
2 stk tudda til að hrinda.

Okkar lið hinsvegar taldi betra að setja húmmel klæddan nælonþráð í markið.
Feitabollur í sínhvort hornið og slánann á línuna.
Guðmundur þjálfari var svo hvergi sýnilegur og undrar það mig mjög.

Rússar höfðu son Gerard Depardieu í markinu og var ekki hægt að koma atómi framhjá þessu fyrirbæri.
Markvörður þessi var einhverskonar blendingur af birni og apaketti.

Eitthvað sá jeg í íslenskum blöðum að liðið hefði plan fyrir þetta mót, líkast til lágt plan af þessum
leik að dæma.

Næsti bardagi er gegn rauðnefjum frá Chile.
Sauðirnir frá Santiago geta reynst okkar mönnum hálir viðureignar og ekki skal vanmeta indjánann.



Nú læt jeg skeyti þessu lokið og ætla að finna mjer ópíumstofu til að slaka á það er
eftir lifir kvelds.

Það er Jón Andri Finnson sem ritar frá Madrid.

Friday, January 11, 2013

Rússarnir koma!

Telegram from Madrid Spain.
Jeg hefi komið mjer fyrir á hotel Convencion hjer í Madrid.
Hjeðan jeg mun rita handboltafrjettir mínar ef bakkus leyfir.
Einkennilega þykir mjer öryggi farþega hjá Icelandair vera orðið undarlegt.
Er maður nú tjóðraður frá flugtaki til lendingar.
Hefi jeg eytt part úr degi að hreinsa föt mín af límbandi því er mjer var vafið inn með.

Af mjer er það að frjetta að jeg hefi dvalið á heilsubar suður í Grikklandi undanfarið ár þar sem jeg hefi verið í svokallaðri Ouzo meðferð sem á að draga úr áfengislaungun minni.
Meira mun jeg rita um lífsglímu mína síðar.

Jeg byrjaði daginn á að líta á leikvanginn hvar ruddar okkar munu berja á mótherjum sínum næstu daga.
Missti jeg nánast andlitið er jeg gjekk inn í frjettamannabásinn og sá þar konu eina sitja við skriptir.
Hló jeg næst dátt og spurði hvort frjettamenn hjer væru farnir að ráða sjer einkarita til skriptanna.
Sagði hún svo eigi vera heldur væri hún sjálf starfandi frjettakona.
Missti jeg þá lyst á þeim miniature sem jeg hjelt á.

Sagði jeg henni næst að það færi betur með fingur hennar að stunda útsaum í öruggu hjónabandi en að skemma þá með því að reyna að skrifa um jafn flókna íþrótt og handboltann.

Minnispunktur:  Verð að fletta upp orðinu feministi , líklegast afsprengi af orðinu kommúnisti eður falangisti.

Fyrstu fangbrögð okkar verða gegn Sovétríkjunum
Rússa munu okkar menn fyrst byrja á að kyrkja og berja.
En hjer má sjá mynd af klassískum Rússa.











Rússi þessi er þjettholda og þrútinn af vodka drykkju likt og svo margir landa hans.
Margir halda að mynd þessi sje af Agli Helgasyni en er það rangsýni því Egill er eingaungu með matarfitu.

Rússar eru af austur slavnesku bergi brotnir og haldnir þrælslund eins og svo margur slavinn.
Hann kýs sjer einræði, fáfræði og fálæti.

Rússar eru mestanpart gungur af svo miklum meiði að fyrsti geimfari rússa var tíkin Laika.
Svo ekki hefi jeg miklar áhyggjur af að íslensku sauðnautin eigi í miklum vandræðum með að hnoða þessari vodkalegnu fyrirstöðu úr vegi.

Hefi jeg eigi fundið Guðmund þjálfara liðsins til að fá liðskipan okkar manna en geri jeg ekki ráð fyrir breytingum þar á bæ þar sem hann leikur yfirleitt með sama mannskapinn og heimspekinginn Stefán Ólafsson sem fyrirliða.

Auglýsingar





















Til að tryggja mjer drykkju aurinn hefi jeg tekið upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp á auglýsingar í pistlum mínum.  Heyrast nú húrra hróp úr frjálshyggjuhorninu en kommúnista kvein úr kviði kirkjunnar manna.


















Það er Jón Andri Finnson er ritar frá Madrid , Spain.

Thursday, January 20, 2011

Íslendingar ná fram hefndum eftir að hafa fengið Geir H Haarde að gjöf frá Noregi.

Jeg held barasta að það hafi verið fleiri en ein kjelling í því norska liði er hjer lagðist veinandi í gólfið.
Fyrir þá sem ekki þekkja norveg kemur hjer örstutt lýsing á landi og þjóð.
Norðmenn ganga um á gönguskíðum og klæðast lopapeysum.
Norðmenn kunna ekki að elda mat en geta rukkað duglega fyrir hann.


Norðmenn flytja að mestu leyti inn íslendinginn og ódýran öl frá svíþjóð.

Norðmenn gáfu okkur Geir H Haarde og Siv Friðleifsdóttur sem er mesti óleikur sem nokkur þjóð hefir sýnt nágranna þjóð sinni.

Það var því sannarlega ánægjulegt að taka þessa olíubornu peysukomma á gönguskíðum í bakaríið.

Sóknar og varnarleikur norðmanna var líkt og sjálfur Geir Haarde hafi hannað hann,vita gagnslaus og stórhættulegur þeim sjálfum.

Þegar norðmenn áttu að spila vörn fóru þeir í sókn.

Í hálfleik fór norsk sendinefnd hjer um salinn og sagði að sigur þeirra manna væri vís því þeir væru að spila alveg nýja tegund af handbolta.

Í seinni hálfleik Haarderuðu norðmenn alveg til leiksloka og ætluðu á síðustu mínúta að gera eitthvað en þá var það orðið of seint.

Nú blasir við okkur að takast á við þjóðverja sem ku spila jafn fallegan handbolta og andlit Angelu Merkel.



Það er Jón Andri Finnson sem símar frá Sverige.