
Nautgripirnir okkar í Seint Galinn mættu hópi illvígra Nauta frá Króatíu í gær.
Kom þá í ljós að Nautin okkar eru ekkert nema Beljurnar okkar.
Króaðir af Króötum kúkuðu kappar vorir í hvíta klútinn og gáfust upp.
Nú er staðan orðin kunnugleg fyrir Beljurnar okkar, þurfa að treysta á aðra.
Nú þurfa Danir að vinna Serba og Hamas hreyfingin þarf að halda svínakjötsveislu fyrir heittrúaða Gyðinga.
Nú er staðan sú að fleiri naut eru stödd í Göppingen sjúkrabúðunum en eru í sjálfum landsliðshópnum.
Garcia,Rollo,Alexander Pettersson eru allir stórslasaðir eftir að hafa orðið fyrir árás erlendra nauta.
Flugdólgurinn Viggó var ekki sáttur í lok slagsmálanna og þurfti hann að fá tvær flugfreyjur til að slá niður.