
Samskipti Íslands og Rússlands hafa í gegnum tíðina einkennst af Síld, Ladabifreiðum og Vodka.
Rússneski björninn er eptir fall Stalíns hungurmorða en með brennandi frelsis þrá í hjarta.
Nú í kveld munu Íslendingar ráðast inn í Rússland líkt og forfeður þeirra gerðu er þeir ruddust með rymjandi rassaprumpi inn í ráðstjórnarríkin til Kænugarðs.
Þá lak rússneskt blóð í frjóan svörð móður Rússlands.
Í kveld munu Rússar verjast líkt og í Stalíngrad í Janúar 1943 og sækja líkt og í Janúar 1945. Í Janúar eru Rússar hvað viðskotaillstir því þá nánast frýs Vodkinn í vetrarhörkunum og þeir byrja að þynnast upp með tilheyrandi heimilisofbeldi.
Því heimilisofbeldi fá Íslensku íspinnarnir okkar að kynnast og ekkert verður kvennaathvarfið til að hlaupa í þegar dómarar leiksins hafa flautað hann á.
Nú vantar okkur sárlega Brjósklosbangsann okkar hann Fúsa furðufés.
Ekki fer Logi Geirsson að bíta í barka bolsévika.....
Það er Jón Andri Finnson sem símar frá Túnverjalandi.