Strákarnir komnir til Slóveníu í Tékklandi.
Þursaflokkurinn Íslenski kom til Slóveníu í Tékklandi seint í gærkvöldi.
Nokkrir höfðu sofnað á leiðinni og var því talsvert skælt þegar fararstjórarnir þurftu að vekja sum tröllin.
Menn náðu sér nú fljótt þegar kom í ljós að það var spagettí í matinn á hótelinu.
Og voru margir orðnir út ataðir í tómatsósu og gleðibros skein úr hverju andliti í lok málsverðar.
Var nú hlaupinn svefngalsi í hópinn og tók nokkurn tíma að koma mönnum í háttinn.
Í dag mun liðið æfa sig í 6 núll áhlaupi á andstæðing, peysutog og andlitsskell.
Á seinni æfingunni verða nokkrir látnir æfa brottvísanir og muninn á gulu og rauðu spjaldi og svo mun iðjuþjálfi æfa kast og grip.
Á meðan munu aðrir æfa hraðaupphlaup og einelti á hornamönnum.
Á morgun rennur svo stóra stundin upp þegar við munum slást við úrvalslið bæjarbúa hér í Slóveníu sem var sett saman sérstaklega fyrir þetta mót.
Hef ég heyrt því fleygt að mestu slagsmálahundar Tékklands séu einmitt búsettir hér í Slóveníu þannig að morgundagurinn gæti orðið erfiður.
Í kvöld kemur svo í ljós hvort
Gummi þjálfari samræmist Evrópureglum um stærð þjálfara en Gummi gengur hér um í forláta Bítlaskóm sem útvegaðir voru fyrir ferðina.
Ef í ljós kemur að Gummi samræmist ekki Evrópskum hæðarkröfum mun Þorbirni Jenssyni verða flogið hingað til Tékklands til að taka við liðinu.
Dagur Sigurðsson fyrirliði er óðum að ná sér af meiðslunum og í gær gat hann matast sjálfur, gengið 100 metra og vélritað 150 orð á mínútu á gamla
Brackelsberg ritvél hér á hótelinu.
Þannig að það lítur allt vel út fyrir morgundaginn.
Það er Oddur Eyjólfsson fréttaritari dvergar.blogspot.com sem skrifar frá bænum Slóveníu í Tékklandi.