
Glímubrögð dugðu ekki gegn Spænskum Don Kíkótum, því sóknir Spænskra voru flóknar líkt og Picasso málverk.
Á meðan reyndu Íslensku þursarnir að Kjarvala sig í gegnum sangríu og síestu Spánverja.
Líkt og Lómarnir á málverki Gunnlaugs Shceving störðu Íslensku Þursarnir forviða á Spænsku leikmennina sem litu aftur á móti á Íslenska liðið líkt og á málverk
Diego Rodríguez de Silva Velázguez af Venusi skoðandi sig í spegli eða La venus del espejo
Í hálfleik sötruðu Spænskir Sangría og brögðuðu á listfengi Spænskrar matargerðarlistar líkt og Paella.
Meðan Íslensku þursarnir bruddu "Strákana okkar" frá Kjörís og drukku með því illa soðin landa.
Leikur Íslensku þursana var jafn fjörugur og 17. Júní í Hafnarfirði og Halli og Laddi í 24.tíma grín maraþoni með Spaugstofunni.
Næst mætum við Rússum í keppni um hverjir fái að sitja aftast í rútunni á leiðinni heim.