-Gríðarleg eftirvænting í Slóveníu-
Íbúar Slóveníu í Tékklandi bíða með eftirvæntingu eftir því að Evrópumótið í Þursaglímu hefjist þar í landi.
Þessir hressu herramenn sem blaðamaður dverga hitti fyrir utan dómhúsið í Slóveníu sögðust aldrei hafa séð þessa íþrótt en vissu til að
einn maður í nágrannabænum hafi stundað þessa íþrótt fyrir fyrra stríð. En hann kom til baka handarlaus eftir dvöl sína í skotgröfunum og sneri sér að dýfingum en drukknaði á fyrstu æfingu.
Þeir sögðust bíða spenntir eftir því að mótið byrjaði enda skyldist þeim að þessi íþrótt jafnaðist til fulls á við sýningu Sirkus Tékkó sem sló upp sýningu árið 1982 í tengslum við alþýðuhátíð kommúnistaflokksins.
Aðspurðir hvort þeir þekktu Ólaf Stefánsson handboltamann sögðu þeir nei, en þeir þekktu vel til Þjóðlagasöngvarans
Olaf Stvef sem skemmti bæjarbúum árið 1978 á bæjarhátíð kommúnistaflokksins.