
Eftir árhundraða þrælkun á hugarfari og framkvæmdagleði hefur Danskurinn sannað að hann heldur enn hreðjartaki á þessari þjóð.
Eftir hið nauma tap gegn herra þjóðinni þá hringdi jeg í Jón Ásgeir og ræddi við hann um að loka Magasin Du Nord og síðar við Hannes Smárason um kaup á öllum dönskum bruggverksmiðjum og breyta þeim í framleiðslu fyrir Eplajóga.
Eru nú þær framkvæmdir í fullum gangi.
Nú einnig ræddi jeg við Danskan pólití og heimtaði að fá öll handritin heim og að Geirfuglinn í formalíninu fengi lausn úr stofufangelsi Dönsku krónunnar sem kúgar enn hið litla ríki.
Skýrasta dæmið um kúgun Dana er að Íslenzki þjóðsaungurinn var leikinn á þreföldum hraða meðan danir gátu sungið sinn saung á þeim hraða er hæfir þvoglumæltu saungli bjórdrykkjumanns.
Dómarar leiksins hafa sennilega fengið frítt í Legoland í sumar og kvinnum þeirra mútað með Georg Jensen eða feitum bita af skinku.
Eitthvað sem ekki er á færi fátækrar þjóðar sem umlukin er köldu atlantshafinu.
Rís hið unga Íslands merki!
Það er Jón Andri Finnson Íslendingur og ungmennafjelagsmaður sem símar með bláfánann í annari hönd frá Hamborg í Germaniu.
Jeg veit eigi hvort fje fáist til heimferðar en líklega þarf jeg að búa hjá Sval þjálfara fram á hundadaga.